DallaSagan af fyrstu páskum hefst um morgun.  Í  morgunsárið gengu konurnar út að gröfinni. Morgunsár. Fallegt orð.  Ár morguns, allt er að byrja og allt er eftir.  Tilhlökkun er mikils virði. Það er gaman að fara í veislu eða fá einhvern langþráðan í heimsókn, vissulega, miklu betra þó að geta hlakkað til.  Gleðin fær þá lengra líf og smitar út frá sér, hún gefur miklu fleiri dögum innihald.

 

Með bestu kveðjum,  Dalla Þórðardóttir