Kvennakirkjan er sjálfstæður hópur sem starfar í íslensku þjóðkirkjunni og byggir starf sitt á kvennaguðfræði. Hún var stofnuð 14. febrúar 1993.
Heimilisfang hennar er að Þingholtsstræti 17, 101 Reykjavík. Kvennakirkjan heldur guðþjónustur í hinum ýmsu kirkjum þjóðkirkjunnar, oftast í Reykjavík, en líka úti á landi. Kvennakirkjan hefur líka haldið guðþjónustur í öðrum löndum og hefur tengsl við hina ýmsu hópa kvenna erlendis sem byggja starf sitt á kristinni trú. Í Þingholtsstræti hittist kór Kvennakirkjunnar á fimmtudögum kl.16:30 og eru allar konur sem löngun hafa til hvattar til að mæta og syngja með. Þar eru einnig haldin ýmis konar námskeið og síðdegisboð með fyrirlestrum og kaffi. Þangað er einnig hægt að koma til samtala um eigin hagi.

Markmið Kvennakirkjunnar er að vera vettvangur kvenna sem vilja hittast til að fá styrk og gleði kristinnar trúar og nota í daglegu lífi. Við komum með nærveru okkar og hugmyndir, gleði og vanlíðan, við gefum það hinum, og tökum á móti því sem þær gefa. Nærvera hinna er öllum konum Kvennakirkjunnar mikilvæg, og við biðjum allar hver fyrir annarri. Félagskonur Kvennakirkjunnar eru um 150. Hægt er að gerast félagskona hér á síðunni. Árgjald fyrir árið 2013 er 5.000 krónur. Nýjar félagskonur eru boðnar velkomnar.
Guðþjónustur Kvennakirkjunnar mótast af kvennaguðfræði. Við tölum um þau málefni sem snerta sjálfar okkur, höfum bænastundir þar sem við lesum bænir sem allar sem vilja skrifa þegar þær koma í messuna, túlkum texta Biblíunnar svo að þeir verði okkur sem skiljanlegastir og breytum þeim úr textum sem ávarpa menn í texta sem ávarpa konur. Við tölum um Guð sem vinkonu okkar. Margar konur koma fram í messunum.
Við setjum mál okkar oft fram með leikþáttum og með öðrum sjónrænum hætti. Kór Kvennakirkjunnar leiðir söng og listafólk flytur tónlist.
Við höfum lagt okkur eftir nýjum lögum og sálmum og konur hafa ort fyrir okkur og þýtt nýja sálma með boðskap Kvennakirkjunnar.
Eftir messur er kaffi í safnaðarheimilum kirknanna svo að við getum spjallað saman í næði. Margar konur annast messukaffið í sameiningu.

Námskeið Kvennakirkjunnar eru haldin á mánudagskvöldum. Námskeiðin byggjast öll á kvennaguðfræði og fjalla um margvísleg efni, lífsgleðina, lífsstílinn, ráð í dagsins önn, ráð til að komast frá erfiðleikum skilnaðar, kenningar kvennaguðfræðinnar, Biblíuna og margt fleira.
Kvennakirkjan hefur gefið út fjórar bækur, Vináttu Guðs, bók um kvennaguðfræði eftir séra Auði Eir Vilhjálmsdóttur, Vinkonur og vinir Jesú, valdir textar úr Nýja testamentinu á máli beggja kynja, Gleði Guðs, bók um tilfinningar daglegs lífs og Bakarí Guðs, bók um lúterska guðfræði og framtíð kirkjunnar.
Kvennakirkjan heldur opna stýrihópsfundi fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði kl. 17:00. Þangað eru allar félagskonur velkomnar. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir og séra Arndís G. Bernahardsdóttir Linn eru prestar Kvennakirkjunnar. Söngstjóri Kvennakirkjunnar er Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Upplýsingafulltrúi er Elísabet Þorgeirsdóttir.