Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir Predikun í Neskirkju 16. febrúar 2025
Það er afmæli Kvennakirkjunnar. Hún er búin að segja okkur blíðlega í 32 ára að við skulum umfram allt lifa í kristinni trú okkar. Þess vegna auglýstum við í útvarpinu að við ætluðum að tala um vellíðan í boði Guðs.
Ég fékk þennan fallega rauða kassa í jólagjöf. Ofaní honum var jólabókin eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur. Hún kom einu sinni til okkar á mánudagsfund í Þingholtsstræti og síðan hef ég fylgst með bókunum hennar. Það er alltaf máttugt að hitta fólk.
Ég held að þessi bók sé bæði skáldsaga og ævisaga hennar sjálfrar. Það eru svo margar konur núna og á hinni öldinni að skrifa um sig og fjölskyldur sínar. Hlín Agnarsdóttir, Ásdís Halla Bragadóttir og miklu fleiri. Sumar þeirra segjast verða að skrifa sig frá því sem gerðist. Þær skrifa og verða frjálsar. Alveg er það dásamlegt.
Í síðustu messunni okkar sagði séra Anna Sigríður Pálsdóttir okkur frá ýmsu í ævi sinni. Það var svo margt sem hafði gerst og gerðist áfram að hún vissi ekki hvað hún gat gert við þetta allt. En svo vissi hún það. Hún fór til Guðs. Ég get þetta ekki, sagði hún við Guð. Getur þú ekki gert eitthvað? Jú, ég get það sagði Guð og tók hana að sér. Hún sendi hana til vinkvenna sinna og vina í útlöndum og þau tóku á móti henni. Eftir það gat hún lagt hugarangrið frá sér. Allt í boði Guðs. Í mætti hennar og óendanlegum kærleika og skilningi.
Ættum við að huga að okkar eigin ævi? Ég held að við segjum okkur sjálfum ævisögur okkar og kannski stundum öðrum. Það er gott að eiga þau að sem hlusta og skilja. Við segjum Guði alltaf. […]