Gætum að andlegum auðæfum okkar
Það er dýrmætt að eiga trú. Það er fjársjóður. Látum engan og ekkert taka hana frá okkur. Hún er frjálst val. Og það er einnig dýrmætt að fá að lifa í kristnu samfélagi, hvort heldur sem er í kirkjunni eða í þjóðfélaginu. Það er yndislegt að hafa frelsi til að sækja kirkjur og fá þar kraft og blessun til að fara aftur út í hið daglega líf. Gætum að andlegum auðæfum okkar. Við erum fulltrúar Guðs í heiminum. Við berum ábyrgð að standa vörð um réttlætið.
Með bestu kveðjum, Hulda Hrönn M. Helgadóttir