Störfum og fögnum

Lítum  yfir sameiginlegt starf okkar í Kvennakirkjunni, bæði þess sem við höfum gert og þess sem við ætlum að gera.  Nú eru miklar sviptingar í umræðunni um kristna trú og um þjóðkirkjuna sem boðar hana.  Það er ekki bannað að tala illa um kirkjuna og trúna.  Það hefur alltaf verið  gert.  Eins og það hefur alltaf verið fólk sem hugsaði og talaði og vann í trú sinni og samveru kirkjunnar.  Við erum í hópnum, þeim stóra hópi. Yndislegt  Stöndum saman og gleðjumst.

Blíðar kveðjur,  Auður Eir

By |20 janúar 2016 21:25|Dagleg trú|

Verum alltaf glaðlegar

Við vitum af langri reynslu hvað það skiptir miklu máli að eiga glaðleg samskipti við sjálfar okkur.  Þá verðum við sjálfum okkur og öðrum til blessunar.  Við erum mildar og máttugar.  Líka hugrakkar og skemmtilegar.  Allt af því að við erum vinkonur Guðs.   Vertu glaðleg, sagði Jesús.  Þess vegna var það skrifað til safnaðanna seinna.  Og þess vegna segjum við það hver við aðra:  Vertu glaðleg í dag – og sjáðu í kvöldhvort það var ekki gott.

Blíðar kveðjur,  Auður Eir

 

By |16 janúar 2016 21:21|Dagleg trú|

Við höldum áfram að vera mildar og máttugar

Við höldum áfram að vera mildar og máttugar. Óskum hver annarri árs og friðar.  Og þökkum fyrir dýrmæta samveru og samhug á árinu.  Við styrkjum og styðjum starfið með nærveru og með því að fylgjast með því og hafa áhuga á því.   Þegar nýtt ár byrjar getum við hugsað til okkar eigin lífs og litið um öxl og fram á við.  Allt í kærleika  og friði hjarta okkar.  Jesús sagði okkur að sýna sjálfum okkur umhyggju, sömu alúðina og við viljum sýna öðrum og fá líka frá þeim.

Blíðar kveðjur,  Auður Eir

By |12 janúar 2016 21:21|Dagleg trú|

Miskunn Guðs varir – tilvitnun í textann í síðustu kveðju

 

Þessi orð minnir okkur á að náð og miskunn Guðs er ný á hverjum morgni.  Þvílík blessun sem við fáum að njóta.  Já trúfesti Guðs við okkur er mikil.  Og á hverjum morgni fáum að dvelja í náð og miskunn Guðs.

Hvern morgun á sér stað upprisa.  Við erum vön því að hugsa einungis um upprisuna í tengslum við líf eftir dauðann, en upprisan er svo miklu dýpra hugtak.  Á hverjum morgni megum við rísa upp á ný í náð Guðs.  Hvern morgun fær birtan að lýsa upp myrkrið.  Hvern morgun gerist kraftaverk.  Guð sjálfur umvefur okkur miskunn sinni.

Með því hugarfari,  að átta sig á að náð Guðs og miskunn er ný á hverjum degi, og með því að rísa upp á hverjum degi til nýs líf með honum, þar sem kraftaverkin gerast, þá verður allt jákvæðara og auðveldara.  Já í samfélaginu við Guð breytast viðhorf okkar því hann umvefur okkur kærleika sínum og náð og gefur okkur von.

Það er yndislegt að vakna að morgni dags og minnast þessa texta og leyfa honum að umfaðma sig og gefa okkur bros á vör.

 

Bestu kveðjur,  séra Hulda Hrönn M. Helgadóttir

By |7 nóvember 2015 21:30|Dagleg trú|

Miskunn Guðs varir

21En þetta vil ég hugfesta

og þess vegna vona ég:
22Náð Drottins er ekki þrotin,
miskunn hans ekki á enda,
23hún er ný á hverjum morgni,
mikil er trúfesti þín.
24Drottinn er hlutdeild mín, segir sál mín,
þess vegna vona ég á hann.
25Góður er Drottinn þeim er á hann vona.  (Harmljóðin 3:21)

Bestu kveðjur,séra Hulda Hrönn M. Helgadóttir

 

By |4 nóvember 2015 21:25|Dagleg trú|

Vakknaðu og klæddu þig í styrk þinn

Hér kemur textinn úr 52. kafla Jesaja og nokkrum fleiri köflum.
Vaknaðu og klæddu þig í styrk þinn,
farðu í fallegu fötin þín, vinkona Guðs.
Óttastu ekki því að hún er hjá þér.
Hún hefur feykt burt mistökum þínum.
Hún hefur skrifað nafnið þitt í lófa sinn.
Hún styrkir þig og gerir þig frjálsa
og gefur þér sínar eigin hugsanir.
Þegar þér finnst þú falla í rúst
gerir Guð þig aftur sterka og tignarlega.

Blíðar kveðjur,  Auður

By |26 október 2015 12:30|Dagleg trú|

Þetta er hreyfilegt

Amma mín í Miðstræti sem var að norðan sagði að föt sem fóru vel væru hreyfileg.  Ég veit ekki hvort það er sérlega norðlenskt orðaval.  En það lýsir fötum sem eru svo vel sniðin að við finnum ekki fyrir þeim en finnum hvað  við  erum flottar og elegant.  Við erum það nefnilega.  Þú ert verulega flott manneskja og eftir því yndisleg á alla lund.  Treystu því nú í dag.  Og á morgun.  Og alla daga.   Í 52. kafla Jesaja stendur í útleggingu Kvennakirkjunnar:  Vaknaðu og klæddu þig í styrk þinn, farðu í fallegu fötin þín, vinkona Guðs.    Óttastu ekki því að hún er hjá þér.
Ég skal birta allan textann næst.

Blíðar kveðjur,  Auður

By |23 október 2015 12:26|Dagleg trú|

Hreybbðu þig svo þú verðir ekki deybbðarleg

Það er talað skemmtilegt mál fyrir norðan en það er því miður á udanhaldi.   Þegar kona fór á spítalann á Húsavík spurði vinkona hennar:  Var hún svæbbð?  Og önnur vinkona svaraði:  Nei, hún var deybbð.  Ég held bara að við tökum stundum betur eftir því sem er sagt á málfari sem við heyrum sjaldan.  Þess vegna sendi ég okkur þessa hvatningu:  Hreybbðu þig svo að þú verðir ekki deybbðarleg.  Það var nefnilega svoleiðis að ég hitti konu að norðan og hún saggði:  Ég held að veturinn verði betri en í fyrra.  Þá hreybbði ég mig svo lítið að mér fannst  stundum eins og ég væri kæbbð.
Hreyfumst og kætumst og fylgjum fordæmi Jesú sem spásseraði eins og ekkert væri um allt sitt heimaland.   Hann saggði að hans fólk skyldi fara út um allan heiminn með fagnaðarerindið.  Það má þá ekki minna vera að við förum með með smáspöl okkur og öðrum til gleði.

Blíðar kveðjur,  Auður

By |20 október 2015 12:25|Dagleg trú|

Elskum Guð – og þá kemur lífið til okkar

Ég hitti vinkonu okkar á Laugaveginum og við tókumst tali um lífsins gagn og nauðsynjar og auðvitað veðrið sem er þó stór þáttur lífsins gagni.  Hún sagðist vera uppgefin á fréttunumog að sér liði betur þegar hún hlustaði lítið og læsi varla blöðin.

Nú hófust glaðlegar umræður okkar um okkar eigin fréttaskrif. Sem við stóðum í sólargeislunum á Laugaveginum sáum við skýrt  og  greinilega að það er lang best að við sköpum okkar eigin fréttir og af okkar eigin lífi og sjáum sjálfar um að þær séu góðar.  Hvers vegna í ósköpunum ættum við að vera að láta það trufla okkur sem við ráðum hvorki í einu né öðru en annað fólk ráðskast með þótt það komi okkur sumt við en annað ekki?

Okkur þótti auðsætt að við kæmum lífsins gagni og nauðsynjum best með því að ganga okkar eigin veg í gleði og bjartsýni því það hefði best áhrif á allt í kringum okkur.

Hvað segir þú, góða vinkona í Kvennakirkjunni?  Ég sendi okkur þessi gullvægu orð sem Guð sendi okkur í Gamla testamentinu: Veldu lífið.  Þau standa í 5. Mósebók. 30.19.  Og rétt á eftir stendur:  Þú skalt elska Guð, því líf þitt er komið undir því.

Ekki er það flókið.  Við elskum Guð.  Af því að hún elskarokkur.  Og lífið kemur til okkar dag eftir dag í rigningu og sól, erfiðleikum og gleði.  Eins og við höfum alltaf séð.

Blíðar kveðjur, Auður

By |8 október 2015 21:26|Dagleg trú|

Að vera góð manneskja

Í samfélaginu við Krist Jesú gildir hvorki umskurn né yfirhúð heldur trú sem verkar í kærleika.  (Galatabréfið 5.6)
Það er vinna að vera góð manneskja, það er bara stundum hunderfitt að gera það sem er rétt og maður veit að maður á að gera en það er æfing.  Góð bæn sem ég þarf stundum sjálf að fara með eða þyrfti oftar að fara með er:  ,,Góði Guð, í dag hef ekki talað illa um neinn, ég hef ekki misst móðinn.  Ég hef ekki verið geðstirð, viðskotaill eða sjálfselsk.  En eftir nokkrar mínútur fer ég fram úr rúminu og frá og með þeirri stund þarf ég talsverða hjálp frá þér.  Amen“  Jesús setti mælistiku á allar mögulegar og ómögulegar reglur og það var kærleikurinn og til þess að rækta bæði trúna og kærleikann höfum við ýmsar leiðir.  Gott er að minna okkur á alla daga að miðlum í öllu okkur lífi trú sem verkar í kærleika, vera góð við okkur sjálf og aðra í kringum okkur og þá verum við á réttri leið.  Alla vega reynum, stundum tekst okkur vel upp og stundum ekki en við reynum og Guð styður okkur 100% með því að gefa okkur enn meiri trú sem verkar í kærleika.

Guðbjörg Arnardóttir

By |5 október 2015 10:21|Dagleg trú|