Kvennakirkjan heldur guðþjónustu í Neskirkju sunnudaginn 15. febrúar klukkan 20. Séra Agnes M. Sigurðardóttir predikar. Anna Sigríður Helgadóttir syngur einsöng og Aðalheiður Þorsteinsdóttir leikur á píanó undir sálmasöngnum. Á eftir verður messukaffi í safnaðarheimilinu.
