Guðþjónusta verður í Grensáskirkju sunnudaginn 22. nóvember klukkan 20. Séra Elínborg Gísladóttir predikar, Anna Sigríður Helgadóttir syngur einsöng og Aðalheiður Þorsteinsdóttir leikur á píanó undir sálmasöngnum. Í bænastund verða lesnar upp bænir úr bænakörfunni og við syngjum saman. Á eftir verður messukaffi í safnaðarheimilinu.
