Kvennakirkjan verður 30 ára og heldur Afmælisboð í Neskirkju sunnudaginn 12. febrúar klukkan 15.30 til 18.00. Yfirskrift boðsins er Guð vinkona, breytt guðfræði, ný tónlist, ný messuform. Dagskrá:

Samtal um framtak Kvennakirkjunnar í 30 ár

  • Hvaða áhrif hafði kvennaguðfræðin á preststarf mitt?

Séra Arndís G. Bernhardsdóttir Linn

  • Tónlist Kvennakirkjunnar og ný sálmabók Þjóðkirkjunnar

Aðalheiður Þorsteinsdóttir og Anna Sigríður Helgadóttir

  • Ný messuform og helgisiðabók Kvennakirkjunnar, Göngum í hús Guðs

Séra Elína Hrund Kristjánsdóttir

Við byrjum á afmæliskaffi, setjumst svo á rökstóla og endum með guðþjónustu

           Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir predikar,  Aðalheiður Þorsteinsdóttir spilar

og Anna Sigríður Helgadóttir syngur einsöng.

Öll hjartanlega velkomin!