Vetrarstarf Kvennakirkjunnar hefst með guðþjónustu í Seltjarnarneskirkju sunnudaginn 27. september klukkan 20. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédikar, Anna Sigríður Helgadóttir syngur einsöng og Aðalheiður Þorsteinsdóttir leikur undir á píanó. Á eftir verður kaffi í safnaðarheimilinu.
Mánudaginn 28. september klukkan 16.30 hefst vetrarstarf leshópsins sem hittist vikulega í Kastalagerði 11 í Kópavogi. Þar fer fram Biblíulestur, kvennaguðfræðiumræða og samsöngur með Aðalheiði einn mánudag í mánuði. Allar Kvennakirkjukonur eru velkomnar.
