Kvennakirkjan heldur guðþjónustu í Seltjarnarneskirkju sunnudaginn 19. apríl klukkan 20. Boðið verður til máltíðar Jesú. Séra Sigríður Munda Jónsdóttir predikar, Anna Sigríður Helgadóttir syngur einsöng og Aðalheiður Þorsteinsdóttir leikur á píanó undir sálmasöngnum. Á eftir verður kaffi í safnaðarheimilinu.