About Arndis

This author has not yet filled in any details.
So far has created 454 blog entries.

Mánudagssamvera í Þingholtsstræti

Á mánudaginn kemur lesum við 3. kaflann hjá Markúsi. Jesús velur postula úr hópnum sem fylgir honum.  Hann valdi bæði konur og menn.  Þau höfðu öll sömu ábyrgð og rétt.  Jesús braut reglurnar sem giltu um konur í landinu og heiminum og gaf okkur nýja stöðu.  

Kvennaguðfræðingarnir á síðustu öld deildu um kristna trú.  Þær sögðu sumar að hún væri trú á karlguð í þreföldu valdi og væri óbærileg og skammarleg fyrir konur.  Þær yfirgáfu hana sjálfar og sögðu að það gerði konur að aumingjum að vera alltaf að biðja Guð í staðinn fyrir að treysta sjálfum sér.  Hinar sögðu að Biblían væri auðlegð kvenna og segði frá kristinni trú sem boðaði þeim frelsi og fögnuð.  Þær sögðu að Biblían segði frá ást Guðs til kvennanna sem voru skelfilega kúgaðar.  Og frá ást hennar til allra kvenna og allra manna og barna.  Biblían segir okkur frá ást Guðs til okkar núna.  Hvað segir þú,  kæra vinkona?  

Hittumst á mánudaginn þær sem viljum.   Lesum allar saman þótt við komum ekki.  Af því að Biblían er auðlegð okkar. Hún segir okkur frá sjálfum okkur.  Og Guði sjálfri.  Ekkert smá.  Ég bara meina það.  Blíðar kveðjur, Auður Eir

By |30 október 2021 12:52|Fréttir|

Markús

Góðu vinkonur.  Við töluðum í síðasta mánudagstíma um 2. kaflann hjá Markúsi.  Mikið er gaman að vita að þið lesið með okkur.  Við töluðum um reglurnar sem Jesús var að fá landsfeðurna til að hætta að halda og hætta að heimta.  Erum við  sjálfar að halda einhverjar reglur sem við ættum að létta af okkur?  Já,  einhverjar en okkur fannst daglegt líf bara ágætlega frjálslegt í okkar eigin góða landi.  Við ráðum því sjálfar að vera ekki að glepjast til að herma eftir siðum sem  okkur þykja óskynsamlegir.  Hvað segir þú?  Blíðar kveðjur,  Auður

By |28 október 2021 9:01|Dagleg trú|

Mánudagshópurinn les 2. kafla hjá Markúsi

Kæru vinkonur.  Í dag, 25. október lesum við 2. kaflann hjá Markúsi.  
Jesús er fluttur.  Kominn í hús í Kapernaum, stærri borg en Nasaret.  Það er ekkert minnst á fjárhaginn svo þau hafa ráðið við peningamálin.  Seinna er sagt að konur í hópnum lögðu fram fé og buðu í mat og fleiri gerðu það.  

Markús segir strax frá því sem varð daglegt brauð í hópnum.  Jesús safnar til sín fólki og gefur því undursamlegan boðskap sem breytir lífinu og læknar huga og líkama.  Hann reynir að fá landstjórnina til að sjá að sér.  Stjórnin var samsett af fræðimönnum trúarinnar en yfir þeim voru Rómverjarnir sem ríktu yfir landinu og höfðu heimsfrægt lagasafn en líka óheillavænlegar hugmyndir.

Ekki drottna yfir fólkinu með hugmyndum ykkar um það sem Guð er að segja, sagði Jesús við færðimennina.  Ekki heimta að fólkið fari eftir öllum þessum smásmugulegu og misskildu hugmyndum ykkar.  Opnið augun og sjáið að Guð talaði allaf um óendanlega ást sína sem hún vildi gefa okkur öllum svo að líf okkar yrði gott og fallegt og við yrðum kjarkmiklar og glaðar manneskjur.  Ég er ekki kominn til að tala við þau sem setja sín eigin lög heldur þau sem vilja taka á móti því sem ég gef þeim.  Ég breyti lífi þeirra, fyrirgef þeim allt sem fór úrskeiðis í lífi þeirra og gef þeim nýtt hugrekki og kærleika.  

Markús skrifar um þetta í öllu guðspjallinu:  Landstjórnin sér ekki boðskap Guðs fyrir öllu því sem hún er sjálf búin að setja upp sem boðskap Guðs.  

Við skulum tala um það sem við höfum kannski sett upp til að gera að markmiði lífs okkar.  Tölum um breytingarnar sem Guð hefur gefið okkur í okkar eigin lífi.  Hvað segirðu?  Blíðar kveðjur, […]

By |25 október 2021 16:47|Fréttir|

Mánudagssamverur með Markúsi

Við lásum fyrsta kaflann hjá Markúsi í mánudagssamverunni okkar.  Við slógum því föstu að Jesús hafi gert bæði konur og menn að postulum.  Rök:  Það sést á upptalningu postulanna í öllum guðspjöllunum að þeir voru ekki bara tólf heldur fleiri.  Guðspjallamennirnir skrifuðu um konur sem Jesús fékk til að vinna með sér.  Það var ekki siður þá að skrifa um konur og þær voru réttindalausar og lítils metnar í þjóðfélaginu.  Það að guðspjallamennirnir töluðu um þær sýnir að þær voru mikilvægar í hópnum hjá Jesú.  Þær  hafa verið miklu fleiri en þær sem þeir nefna.  Þess vegna megum við vera handvissar um að það voru líka konur í síðustu kvöldmáltíðinni.  Blíðar kveðjur,  Auður Eir

By |19 október 2021 19:00|Fréttir|

Verum innilega velkomnar til að lesa Markúsarguðspjall

VERUM INNILEGA VELKOMNAR TIL AÐ LESA MARKÚSARGUÐSPJALL

Mér finnst ekki sem verst að skrifa stuttan kafla fyrir hverja mánudagssamveru bæði fyrir okkur sem komum og ykkur sem lesið heima.  Lesum og lesum og sjáum hvað við sjáum.  Ef þið sem komið ekki viljið tala um eitthvað úr köflunum gætuð þið skrifað til mín á netfangið audureir@ismennt.is eða kvennakirkjan@kvennakirkjan.is.   Þá hugsa ég og hugsa og hugsa um það sem þið skrifið og skrifa til baka.

Við erum að færa ykkur, elskulegu Kvennakirkjukonur bókina núna um helgina. Þið aðrar sem viljið vera með getið keypt bókina  í Þingholtsstræti 17,   hún kostar 5000 krónur og við afhendum hana eftir samkomulagi,  skrifið okkur bara á netfangið audureir@ismennt.is og við hittumst.  

Ég reikna með að við sem komum á mánudögum séum búnar að lesa og tilbúnar  til að tala saman.  Lesum nú Fyrsta kaflann.  

Guðspjöllin bæta frásögum hvert við annað og ég vitna í það sem Matteus segir um ólíkar aðferðir í starfinu,  leið Jóhannesar skírara og leið Jesú sjálfs.  Boðskapurinn er alltaf eins. 
En það er hægt að boða hann á ýmsan hátt.  Það eru ekki reglur um það.  Hvað segirðu?

Haldið þið að fjandinn hafi sjálfur hitt Jesúm eða var hann að berjast við sjálfan sig?  
Eða skiptir það eitt máli að við skulum ekki láta plata okkur heldur treysta Guði til að hjálpa okkur til að gefast ekki upp heldur ná tökum á hugsunum okkar?  Eða ?  Hvað finnst þér?  Er það ekki alla vega stórkostlegt að eiga hjálp Jesú við að velja lífið eins og Biblían segir víða?

Hvað finnst þér um fullyrðinguna um að Jesús hafi líka haft konur í hópnum og það bara strax? 

Það gerast enn kraftaverk.  Er það ekki?

Hvað finnst þér annars?

Blíðar kveðjur,  Auður Eir

By |15 október 2021 19:26|Fréttir|

Guðþjónusta í Neskirkju

Guðþjónusta Kvennakirkjunnar verður í Neskirkju sunnudaginn 10. október kl. 20

Við kynnum nýju bækurnar okkar með biblíuskýringum sem koma volgar úr prentsmiðjunni. Þær heita Kaffihús vinkvenna Guðs. Aðalheiður Þorsteinsdóttir stjórnar söngnum og séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédikar.

Við biðjum og syngjum, drekkum kaffi og tölum saman og förum með gleði og frið heim til okkar.

By |8 október 2021 23:02|Fréttir|

En um bænir og ljóð

Þetta er framhald úr kaflanum Bænir og ljóð í bók okkar Göngum í hús Guðs.

Þetta er útlegging  Kvennakirkjunnar úr köflum í guðspjöllunum:

Þær sen stjórna eiga að þjóna
og vera eins auðmjúkar
og hver dagur væri fyrsti dagur þeirra í vinnunni.
Þær eiga að þjóna þeim sem þær eiga að stjórna.
Það er bara hægt þegar þær sem þiggja forystuna
vinna með þeim sem veita hana
og meta þær jafn mikils og sjálfar sig.
Allar fá allar upplýsingar sem þeim ber.
Allar eru mildar og máttugar
af því að þær eru vinkonur Guðs.
Blíðar kveðjur,  Auður Eir

By |2 október 2021 18:23|Fréttir|

Bænir og ljóð

Við erum að fletta gegnum bókina okkar Göngum í hús Guðs og lesum meira úr kaflanum Bænir og ljóð.  
Ein bænin er eftir Reinhild Traitler í Austurríki og úr bókinni No Longer Strangers. Hún byrjar svona:

Segðu mér systir mín
hvernig fók deyr úr hungri
af því að það hefur ekkert að borða.

Segðu mér systir mín
hvernig fólk deyr úr vonleysi
af því að það hefur enga útleið.
Segðu mér systir mín
hvernig fólk deyr úr ótta
sokkið í þögnina, þögn dauðans.

Segðu mér systir mín hvernig fólk deyr úr sorg
af því að það á mikla auðlegð
en hefur týnt sálu sinni.

Segðu mér systir mín
hvernig fólk deyr úr hugrekki
af því að það þorði að tala
að hrópa gegn kúgurunum.

Við höldum áfram að tala um bókina okkar á næstu mánudögum.
Blíðar kveðjur.  Auður Eir

By |27 september 2021 13:25|Fréttir|

Bænir og ljóð í bók Kvennakirkjunnar, Göngum í hús Guðs

Næsti kafli í bók okkar Göngum í hús Guðs fá eftir kaflanum um blesssunin eru bænir og ljóð

Ein bænin er eftir séra Elínu Hrund Kristjánsdóttur:

Nærvera Guðs umlykur okkur alla daga.  Nærvera hennar felur í sér vináttu og blessun, fyrirgefningu og frið.  Við komum fram fyrir Guð og segjum henni það sem býr í hjarta okkar.  Hún hlustar á okkur og hjarta okkar fyllist gleði og styrk hinnar kristnu trúar vegna þeirrar fullvissu að Guð gengur með okkur í gegnum lífið.  Við öðlumst fyrirgefningu hennar og þess vegna getum við fyirgefið okkur.  Við lifum í fyrirgefningu Guðs og nærveru hennar, frelsi og friður umlykur okkur alla daga.

Blíðar kveðjur, Auður Eir

By |22 september 2021 12:02|Fréttir|

Við hefjum mánudagssamverunar aftur

Nú byrjum við, góðu vinkonur og mikið er það gaman.  Í fyrsta mánudagstímanum, nú mánudaginn 20. september í stofum okkar í Þingholtsstræti 17 – og vertu velkomin og innilega ætlum við að tala um umtalsefni messunnar á sunnudagskveldið kemur.  Það er um guðþjónustuna eins og við skrifum um hana í bókinni okkar Göngum í hús Guðs.  Við hittumst klukkan 16.30 og hættum klukkan 18.  Drekkum kaffi og te og fáum kökur eða eitthvað.  

Við skulum spjalla saman og spyrja hver aðra að því sem okkur sýnist um þetta.  Mér dettur í hug að spyrja hvað guðþjónustan sé eiginlega.  Og hvernig við viljum helst hafa hana.  Og hvernig hún gefi okkur sem besta gleði og huggun og hvað sem við þurfum.  Komdu endilega og vertu velkomin og komum með spurningar eins og við viljum.  Eða bara engar og heyrum hvað við heyrum.  Blíðar kveðjur,  Auður Eir

By |18 september 2021 22:47|Fréttir|