audurilitminnstÍ framhaldi þess sem ég sagði síðast um vonda og góða heiminn sting ég upp á sálmi Kristjáns frá Djúpalæk í dag. Hann er við sálmalagið: Ó, hversu sæll er hópur sá er herrann kannast við. En það má líka syngja hann við lagið Amazing Grace. Alveg prýðilegt. Við endurtökum lagið í seinni hlutanum þótt það passi ekki alveg í annarri línunnni þar. Syngjum sálm á dag !

Vort líf er oft svo örðug för
og andar kalt í fang.
Og margur viti villuljós
og veikum þungt um gang.
En Kristur segir: Kom til mín
og krossinn tekur vegna þín.
Hann ljær þér bjarta sólarsýn,
þótt syrti´ um jarðarveg.

Blíðar kveðjur, Auður Eir