audurilitminnstJudith Plaskow er ein af forvígiskonum kvennaguðfræðinnar.  Hún er Gyðingur og segir frá áhuga sínum  í upphafi kvennabaráttunnar á áttunda áratugnum á að finna eigin form á guðþjónustunni og umræðu um trúna og femínismann.  Það var erfitt.  Hún var háskólakennari og í maí 1981 söfnuðust sextán konur saman á helgarráðstefnu sem varð grundvöllur fyrir áframhaldandi umræðu og baráttu fyrir áhrifum femínismans á gyðingdóminn.  Judith er sannfærð um að  konur eigi mátt og ábyrgð til að endurlífga trúarhefðirnar og hélt uppi óþreytandi umræðu í háskólanum, trúarsamfélaginu og kvennahreyfingunni.  Svona konur breyta heiminum.  Gott að heyra þetta,  blíðar kveðjur, Auður Eir