audurilitminnstSólin skín og fuglarnir syngja ellegar þá að dropar stórir detta úr lofti.
Alla vega er sumarið komið og birtan umvefur okkur dag og nótt.  Hvað
finnst mér nú skemmtilegast í þessu nýja sumri?  Mér finnst skynsam-
legt að við spyrjum okkur og svörum þegar okkur detta svörin í hug.  Það
er nefnilega svo undursamlegt að sjá allt það góða sem við eigum og njóta
þess.

Finnst þér birtan skemmtilegust?  Eða vináttan sem þú færð að njóta á
þessum sumardögum?  Eða möguleikarnir í mismunandi dögunum sem verða
ögn aðrir en í vetrinum?  En alla ársins daga eigum við þessi dæmalaust
góðu tækifæri til að láta dagana ganga eftir taktinum í verkefnunum, mál-
tíðunum, samtölunum, lestrinum, gönguferðunum og hverju sem við tökum
okkur fyrir hendur.  Mismunandi frá einni til annarrar og frá sjálfum okkur
eftir því sem dagarnir bjóða og heimta.

Blíðar kveðjur, Auður