elinaNærvera Guðs umlykur okkur alla daga. Nærvera hennar felur í sér vináttu og blessun, fyrirgefningu og frið. Við komum fram fyrir Guð og segjum henni það sem í býr í hjarta okkar. Hún hlustar á okkur og hjarta okkar fyllist gleði og styrk hinnar kristnu trúar vegna þeirrar fullvissu að Guð gengur með okkur í gegnum lífið. Við öðlumst fyrirgefningu hennar og þess vegna getum við fyrirgefið okkur. Við lifum í fyrirgefningu Guðs og nærvera hennar, frelsi og friður umlykur okkur alla daga.

Elína Hrund Kristjánsdóttir