huldahÁrið 2017 munum við minnast þess að 500 ár eru liðin frá því að Lúther negldi greinarnar 95 upp á kirkjuhurðina í Wittenberg.  Það var upphafið að nútímanum er mat manna.  Þetta leiddi til bætts siðferðis hjá kirkjunnar mönnum.  Þetta leiddi til þess að fleiri lærðu að lesa því Lúther lagði áherslu á að allir ættu að hafa tök á því að lesa Biblíuna.  Þetta leiddi til áherslu á að auka lestrarþekkingu og að reisa skóla í lútherstrúarlöndum og þar sem kristniboð fór fram.  En eins og Friðarverðlaunahafi Nóbels 2015  Malala Yousafzay  komst að orði: Öfgasinnar hafa opinberað hvað hræðir þá mest:

Stúlka með bók   !

Með bestu kveðjum,  Hulda Hrönn M. Helgadóttir