Eins og undanfarna vetur hittast konur Kvennakirkjunnar í Þingholtsstræti á mánudögum milli 4:30 og 6:00. Framundan er spennandi röð af fræðslu þar sem við fáum til okkar ýmsar konur með fyrirlestra og fróðleiksmóla. Mánudaginn 5. mars byrjum við þó innanhús og sr. Arndís annar prestur Kvennakirkjunnar fjallar og leiðir samtal um synd undir yfirskriftinni; ,,Gömul synd og ný!“