Loading Map....
Tímasetning
Mánudagur
20. janúar 2014
19:30 - 21:00
Staðsetning
Þingholtsstræti 17
Skipuleggur þú stefnumót við Guð? Hefur þú áhuga á að dýpka samband þitt við Guð? Fjögurra kvölda námskeið Kvennakirkjunnar þar sem kristnar íhugunar- og hugleiðslu aðferðir verða kynntar og iðkaðar.
Með aldagömlum aðferðum kristinnar trúar lærum við að opna hjarta okkar og taka á móti Guði, í þögn og kyrrð og dýpka þannig tengslin við Guð og þroska trú okkar. Námskeiðið kostar 4000,- kr.
- 20. janúar kl. 19:30. Með Guði í kyrrð: Kynning á aðferð Kyrrðarbænarinnar (Centering Prayer) fyrri hluti
- 27. janúar kl. 19.30 Með Guði í kyrrð; Kynning á aðferð Kyrrðarbænarinnar (Centering Prayer) seinni hluti
- 3. febrúar kl. 19:30 Með Guði í Biblíunni: Biblíuleg íhugun (lectio divina)
- 10. febrúar kl.19:30 Upppörvun og slökun með Þóru Björnsdóttur hjúkrunarfræðing