Næsta mánudagskvöld, 3. febrúar verður þriðja skiptið í námskeið Kvennakirkjunnar, Stefnumót  við Guð – Kristin íhugun og hugleiðsla. Þetta kvöld verður farið í Biblíulega íhugun, Lectio Divina sem er ævaforn íhugunaraðferð innan kristinnar hefðar þar sem íhugað er eftir textum Biblíunnar. Stefnumótið hefst kl. 19:30 og er haldið í Þingholtsstræti 17. Lýsingu á námskeiðinu í heild sinni má sjá hér að neðan.

Skipuleggur þú stefnumót við Guð? Hefur þú áhuga á að dýpka samband þitt við Guð? Fjögurra kvölda námskeið Kvennakirkjunnar þar sem kristnar íhugunar- og hugleiðslu aðferðir verða kynntar og iðkaðar. Námskeiðið stendur yfir 4 mánudagskvöld, frá 20. Janúar til og með 10. febrúar í stofum Kvennakirkjunnar, Þingholtsstræti 17. Námskeiðið kostar 4000,- kr. Arndís G. Bernhardsdóttir Linn prestur Kvennakirkjunnar kennir fyrstu 3 kvöldin og Þóra Björnsdóttir hjúkrunarfræðingur kennir síðasta kvöldið.

Með aldagömlum aðferðum kristinnar trúar lærum við að opna hjarta okkar og taka á móti Guði, í þögn og kyrrð og dýpka þannig  tengslin við Guð og þroska trú okkar.

20. janúar kl. 19:30. Með Guði í kyrrð: Kynning á aðferð Kyrrðarbænarinnar (Centering Prayer) fyrri hluti
27. janúar kl. 19.30  Með Guði í kyrrð; Kynning á aðferð Kyrrðarbænarinnar (Centering Prayer) seinni hluti
3. febrúar kl. 19:30  Með Guði í Biblíunni: Biblíuleg íhugun (lectio divina)
10. febrúar kl.19:30 Upppörvun og slökun með Þóru Björnsdóttur hjúkrunarfræðing