About Elísabet Þorgeirsdóttir

This author has not yet filled in any details.
So far has created 16 blog entries.

Messa í Seltjarnarneskirkju

Næsta messa Kvennakirkjunnar verður í Seltjarnarneskirkju sunnudaginn 20. október klukkan 20. Séra Sigríður Kristín Helgadóttir prédikar, Aðalheiður Þorsteinsdóttir leikur á píanó og Anna Sigríður Helgadóttir syngur einsöng. Á eftir verður kaffi í safnaðarheimilinu.

By |16 október 2024 16:51|Fréttir|

Prestvígðar konur í 50 ár. Reynsla þriggja kynslóða

Þann 29. september verða liðin 50 ár frá því að fyrsta konan, séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir, var vígð til prests árið 1974. Af því tilefni efna Félag prestvígðra kvenna og Kvennakirkjan til málþings og messu í Háteigskirkju frá klukkan 14 til 18. 

Yfirskrift málþingsins er: Prestvígðar konur í 50 ár. Reynsla þriggja kynslóða. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir segir frá baráttunni við að fá prestvígslu og þær séra Guðbjörg Jóhannesdóttir og séra Helga Bragadóttir segja frá reynslu sinna kynslóða af preststarfinu. Séra Ólöf Snorradóttir formaður Félags prestvígðra kvenna leiðir umræður og hvatt er til samræðu og fyrirspurna. 

Kaffisamsæti verður frá klukkan 16 til 17.  

Að því loknu hefst messa Kvennakirkjunnar undir yfirskriftinni Guð er vinkona mín. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédikar og hina ýmsu messuliði flytja biskuparnir séra Guðrún Karls Helgudóttir og séra Agnes M. Sigurðardóttir, séra Elína Hrund Kristjánsdóttir, séra Arndís Linn, séra Dalla Þórðardóttir, Þjóðhildur Þórðardóttir og Elísabet Þorgeirsdóittir.  Aðalheiður Þorsteinsdóttir leikur á píanó, Anna Sigríður Helgadóttir syngur einsöng og Elín Þöll og Yrsa Þórðardætur syngja saman við gítarundirleik.

By |17 september 2024 21:50|Fréttir|

Messa í Garðakirkju

Guðþjónusta verður í Garðakirkju á Álftanesi sunnudaginn 5. maí klukkan 20. Séra Sigríður Munda Jónsdóttir prédikar, Anna Sigríður Helgadóttir syngur einsöng og Aðalheiður Þorsteinsdóttir leikur á píanó undir sálmasöng. Á eftir verður messukaffi í Króki.

By |1 maí 2024 17:53|Fréttir|

Messa í Grensáskirkju 14. apríl

Guðþjónusta verður í Grensáskirkju sunnudaginn 14. apríl klukkan 20. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédikar, Anna Sigríður Helgadóttir syngur einsöng og Aðalheiður Þorsteinsdóttir leiðir sálmasönginn og leikur á píanó. Á eftir verður kaffi í safnaðarheimilinu.

By |7 apríl 2024 11:17|Fréttir|

Messa í Neskirkju 17. mars

Kvennakirkjan heldur guðþjónustu í Neskirkju við Hagatorg sunnudaginn 17. mars kl. 20. Séra Úrsúla Árnadóttir predikar, Aðalheiður Þorsteinsdóttir stjórnar sálmasöng. Anna Sigríður Helgadóttir syngur fyrir okkur. Hlustum, biðjum, syngjum og gleðjumst og drekkum kaffi og tölum saman. Það er með mestu gæðum lífsins að fá að hittast.

By |11 mars 2024 13:45|Fréttir|

Messa í Seltjarnarneskirkju 18. febrúar

Guðþjónusta verður í Seltjarnarneskirkju sunnudaginn 18. febrúar klukkan 20. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédikar, Anna Sigríður Helgadóttir syngur einsöng og Aðalheiður Þorsteinsdóttir leikur á píanó. Messukaffi í safnaðarheimilinu.

Daginn eftir, mánudaginn 19. febrúar, kemur séra Arndís G. Bernhardsdóttir Linn í heimsókn og segir okkur frá því sem hún upplifði í námsleyfi sínu sl. haust þar sem hún var við spennandi nám.

By |22 janúar 2024 14:47|Fréttir|

Aðventustund í Þingholtsstræti 17

Sunnudaginn 10. desember klukkan 20 verður aðventustund í stofum Kvennakirkjunnar. Anna Sigríður Helgadóttir flytur hugleiðingu. Aðalheiður Þorsteinsdóttir leiðir sálmasönginn. Við syngjum jólalög, biðjum og lesum úr Orðinu, drekkum súkkulaði og spjöllum í kvöldstemningu Þingholtanna.

By |6 desember 2023 18:15|Fréttir|

Messa í Neskirkju og Sigríður Guðmars í heimsókn

Messa verður í Neskirkju sunnudaginn 12. nóvember klukkan 20. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédikar og Aðalheiður Þorsteinsdóttir leikur á píanó undir sálmasöngnum. Messukaffi í safnaðarheimilinu.

Daginn eftir, mánudaginn 13. nóvember klukkan 16.30, kemur dr. Sigríður Guðmarsdóttir í heimsókn í Þingholtsstræti 17 og fræðir okkur um femínískar áherslur í sálmum nýju Sálmabókarinnar. Öll eru velkomin.

By |7 nóvember 2023 20:55|Fréttir|

Messa í Grensáskirkju og Sigurvin í heimsókn

Kvennakirkjan heldur guðþjónustu í Grensáskirkju sunnudaginn 15. október klukkan 20. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédikar. Aðalheiður Þorsteinsdóttir leiðir sálmasöng og leikur á píanó. Anna Sigríður Helgadóttir syngur einsöng. Á eftir verður kaffisamvera í safnaðarheimilinu.

Mánudaginn 16. oktbóber kl. 16.30 kemur dr. Sigurvin Lárus Jónsson prestur í Fríkirkjunni í Reykjavík í heimsókn í Þingholtsstræti 17 og ræðir um kvennaguðfræði. Sigurvin hefur mikinn áhuga á kvennaguðfræði og hefur sýnt Kvennakirkjunni stuðning, m.a. í aðsendri grein á visir. is í tengslum við 30 ára afmæli Kvennakirkjunnar í febrúar sl. Öll velkomin.

By |11 október 2023 17:51|Fréttir|

Prédikun Auðar Eir 17. september 2023

Ræða í Seltjarnarneskirkju
sunnudagskvöldið 17. september 2023

Við skulum tala um eftrvæntinguna. Það kemur alltaf ný eftirvænting á haustin. Finnst þér það ekki? Þegar sólskinið verður öðruvísi á litinn og nýr ferskur andardráttur í veðrinu. Og þegar við söfnumst saman. Ég fór í stofurnar okkar í Þingholtsstræti í vikunni til að senda Fréttabréfið og fann eftirvæntinguna í friðinum og fegurðinni strax og ég opnaði dyrnar. Nú verður eitthvað nýtt og gott í stofunum okkar í vetur. Mitt í því góða og venjulega sem við þekkjum frá því í fyrra og árunum á undan. Við ætlum að hittast strax á morgun í fyrstu samverustundinni og tala saman um veturinn.

Við segjum það alltaf þegar við tölum um gleðina að við vitum líka um sorgina. Þegar við tölum um eftrivæntinguna vitum við líka um kvíðann. Við vitum að lífið er alla vega og segjum það hver annarri. Þess vegna segjum við hver annari frá eftivæntingunni. Af því að við vitum allar að við megum alltaf vænta gleðinnar. Líka þegar andradrátturinn í lífi okkar er ekki blíður blær haustsins heldur gustur vetrarins.

Við lesum Biblíuna. Af því að það sem hún segir okkur er grundvöllur og uppspretta eftirvæntingar okkar. Gáum að eftirvæntingu fólksins í Biblíunni. Þau væntu þess fyrst og fremst að hitta Guð í musterinu. Þar var Guð í réttlæti sínu sem hún umvafði um þau.

En hvað við hlökkum til að koma til þín í musterið, það er það yndislegasta sem við eigum. Þar ríkir réttlæti þitt. Í réttlæti þínu verndar þú okkur gegn öðru fólki og líka gegn sjálfum okkur. Þegar Jesús kom vænti fólk þess að sjá hann. Og hlusta á hann. Og finna friðinn sem hann gaf. Í kirkjunni væntu þau þessa nýja og djúpa friðar og fóru […]

By |2 október 2023 10:47|Prédikanir|