|
NÁMSKEIÐ HAUSTSINS
GERUM GOTT LÍF BETRA
Uppskrift að góðum vetri. Vefum saman félagsráðgjöf og kvennaguðfræði sem er guðfræði hversdagsins. Leitum nýrra leiða til að takast á við lífið og verkefni daganna. Sérstaklega verður horft til mikilvægi félagsauðsins í samfélagi okkar og gildi trúarauðsins í samfélaginu við Guð, hina einu sönnu vinkonu. Leiðbeinendur verða Ella Kristín Karlsdóttir og Elísabet Þorgeirsdóttir félagsráðgjafar, Sveinbjörg Pálsdóttir guðfræðingur og stjórnsýsluráðgjafi og séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir.
Námskeið frá 13. september til 4. október.
ÞÍN SAGA, MÍN SAGA
Rifjum upp biblíusögurnar og skoðum þær upp á nýtt. Lærum að segja þær, sjálfum okkur, börnum og öllum sem vilja heyra. Biblían er grundvöllur gleðinnar og alls lífsins og þar með lífs okkar sjálfra.
Eldum saman biblíumat síðasta kvöldið.
Námskeið frá 11. október til 1. nóvember.
KVENNAGUÐFRÆÐI ÞAR OG HÉR
Fjallað um kvennaguðfræði heima og erlendis, upphafið og stöðu hennar núna og neistann
sem hún kveikti og logar enn og breytir heiminum.
Námskeið frá 15. nóvember til 6. desember
Öll námskeiðin eru haldin að Laugavegi 59, Kjörgarði, 4. hæð, á mánudögum frá kl. 17.30 til 19.
Hvert námskeið kostar 4000 krónur
--------------------------------------------------------------------------------------------
MESSUR TIL ÁRAMÓTA
12. september í Breiðholtskirkju
10. október í Fríkirkjunni í Hafnarfirði
14. nóvember í Kirkju óháða safnaðarins við Háteigsveg
5. desember í Laugarneskirkju
29. desember í Háteigskirkju
Messurnar hefjast klukkan 20
|