 |
 |
13.03.2011 |
| Hjarta þitt er þar sem fjársjóður þinn er |
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir
Við skulum leiða hugann að tveimur orðum í kvöld. Annars vegar orðinu föstutíminn og hins vegar orðinu fjársjóður. Þetta gerum við af því að nú er föstutíminn rétt hafinn og af því að vers kvöldsins er um fjársjóð hjarta okkar. Byrjum á fjársjóðnum. Hjarta þitt er þar sem fjársjóður þinn er, sagði Jesús í Fjallaræðunni. Ég veit að engri okkar dettur í hug að bera það upp á sjálfa sig eða aðrar hér í kvöld að fjársjóður nokkurrar okkur sé þar sem miklir peningar eru eða mikið vald eða mikil frægð. Það er þetta þrennt sem er stimplað og vottað að vera þykkur þáttur í undirrót óhamingjunnar í eigin lífi hverrar manneskju og renna svo ákaflega út í samfélagið að það spilli því eins og annað eitur. Eða kannski byrjar eitrið í samfélaginu og rennur inn til okkar. Alla vega, við ætlum ekki að ætla okkur að fjársjóður okkar sé þar. Bara alls ekki. |
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
13.02.2011 |
| 18 ára og sjálfráða |
Messa í Neskirkju. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir
Til hamingju með afmælið. Kvennakirkjan er 18 ára og ræður sér sjálf. Þess vegna stígum við nýtt skref í kvöld. Nýtt fullræðisskref þessa merka afmælis. Við tölum um það á eftir. . Við fögnum því að vera sjálfráða og enn meira fögnum við því að hafa alltaf verið sjálfráða. Hvað höfum við nú gert í 18 ár í frelsi okkar og gleði? Við höfum verið saman og styrkt hver aðra í trú okkar. Það er trúin á Guð vinkonu okkar sem er ein af okkur, alltaf með okkur, tekur þátt í öllu starfi okkar og gefur okkur hugmyndir. Og ef sumar okkar vilja heldur kalla hana eitthvað annað en vinkonu okkar þá höfum við frelsið og gleðina til að una því prýðilega því engin okkar ræður yfir annarri. |
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
16.01.2011 |
| Kletturinn undir fótum þér - Matt. 7:21-29 |
Messa í Hallgrímskirkju. Sveinbjörg Pálsdóttir, guðfræðingur og stjórnsýslufræðingur.
Þetta er fyrsta messa Kvennakirkjunnar á árinu 2011. Því langar mig að byrja á að óska ykkur gleði og gæfu á nýju ári og þakka fyrir allar samverustundirnar í Kvennakirkjunni á því ári sem liðið er. Áramót eru tímamót og á tímamótum hvarflar hugur okkar ósjaldan að því sem var og því sem verður.
• Hvað upptekur huga þinn í upphafi nýs árs?
• Hvað fer um hugann þegar þú lítur til baka? En þegar þú horfir fram á við?
• Hvar stöndum við, - þú og ég? Og hvert liggur leið okkar, - og leið Kvennakirkjunnar, héðan? |
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
14.11.2010 |
| Getur verið að Fjallræðan sé rammi um þig? |
Auður Eir Vilhjálmsdóttir, Kirkja Óháða safnaðarins
Spurning kvöldsins er hvort það sé hugsanlegt að Fjallræðan sé rammi utan um þig?
Ég veit ekki hvort þú kærir þig yfirleitt um ramma utan um líf þitt. Kannski hugsarðu með þér að þú viljir alls ekki vera að ramma þig inn heldur vera rammalaus og frjáls og hafa alveg rammalausa möguleika. Hvað heldurðu? Ég held nú samt fyrir mitt leyti að hvað sem við hugsum um það þá séum við allar innrammaðar í hina og þessa ramma. Við erum rammaðar í genin sem við erfðum og menninguna í landinu og okkar eigin venjur.
|
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
12.09.2010 |
| Hvað þýðir: Sæl eru fátæk í anda? |
Messa í Breiðholtskirkju. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir
Gleðilegt haust, góðu vinkonur, yndislegt að hittast aftur og leiða hver aðra inn í haustið. Ég talaði við eina okkar sem sagði að hún byggist við að veturinn yrði að mörgu leyti góður. Ekki áreiðanlega stórgóður að öllu leyti. Við vitum það alltaf, eins og við segjum líka alltaf. Við skipumst á að mæta gleði og erfiðleikum, það eru margskonar kaflar í lífi okkar allra. Okkur dettur ekki í hug að afneita því eða gleyma því því það er okkur svo hollt og gott að vita það. Okkur býðst ekki sífellt sumar og það er gagnlegt að vita það. Og Guð er alltaf hjá okkur og þess vegna hefur flest tilhneigingu til að fara heldur vel.
|
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
19.06.2010 |
| Messa í Laugardal 19. júní 2010 |
Auður Eir Vilhjálmsdóttir
Elskulega fólk. Verum öll innilega velkomin í Laugardalinn í kvöld. Ég segi það aftur þótt það sé búið að segja það. Af því það er svo gaman að hittast og vera saman í kvöld eins í öllum hinum guðþjónustunum okkar hérna í Laugardalnum á 19. júní. Ég segi það enn sem alltaf fyrr, það væri ekki nærri eins gott að vera hér ef þú hefðir ekki komið. Svo takk fyrir að koma. Það liggur í augum uppi að við tölum um hrunið og uppbygginguna í kvöld. Katrín og Unnur og Auður dönsuðu fyrir okkur dans sem þær hafa sjálfar samið og er um frumöflin. Eins og alla list getum við túlkað dansinn eins og okkur sýnist. Ég les út úr honum afl eldsins og íssins sem tekst og verða að himinbláu vatninu.
|
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
16.05.2010 |
| Líf þitt verður herfang þitt, af því að þú treystir mér, sagði Guð. Jer. 39.18 |
Garðakirkja á Álftanesi. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir
Sagan sem við höfum heyrt í kvöld er úr sögu þjóðarinnar sem Guð kallaði til að varðveita orðið sitt. Hún endaði með því að þjóðin komst heim eftir hrunið og fékk aftur húsin sín heima í Gyðingalandi. Loksins gat fólkið gengið aftur um góðu göturnar sínar og sest niður og drukkið kaffi og smákökur og talað saman. Líklega þekkjum við allar þá undursamlegu tilfinningu að fá að koma aftur þangað sem okkur leið svo vel einhvern tíma áður.
|
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
14.03.2010 |
| Föstum á hugarvíl |
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir
Nú er fastan. Hún er haldin níu vikur fyrir páskana til að gefa okkur tækifæri til að undirbúa okkur undir gleði páskanna. Föstutíminn hefur oft verið heldur dapurlegur í kirkjunni með þungri tónlist og banni á margt sem gerir okkur lífið þægilegt og skemmtilegt. Við erum ekki skyldug til að hafa föstuna svona dapurlega og við getum valið hvort við höldum hana eða ekki. Jesús talaði um föstuna sem var fastur siður í helgihaldi í Gyðingalandi. Fastan var mikil dygð og þegar fólk fastaði málaði það sig með ösku í framan svo hitt fólkið sæi hvað það lifði góðu trúarlífi. Jesús sagði að það skyldu þau alls ekki gera. Hann sagði alltaf að trúin væri ekki reglur heldur vinátta við sig. Ég er tréið, sagði hann. Þið eruð greinarnar. Þið iðkið trú ykkar með því að vera í mér, hafa trú ykkar í hjarta ykkar og vinna með mér. Fólkið hans sem var með honum daglega fastaði ekki. Þau voru harðlega gagnrýnd fyrir að bregða svona út af reglunum og Jesús sagði að þau gætu bara alls ekki fastað meðan þau ættu gleðina yfir því að hann væri hjá þeim. En seinna myndu þau fasta. Þegar þau þyrftu. Fastan var ekki sýning og ekki sjálfspynting. Hún var leið til að dýpka vináttuna við Guð sem frelsar og gleður og huggar og uppörvar og gefur máttinn til að gera það sem er gott og yndislegt. Og það er hægt að fasta á fleira en mat eða svefn eða skemmtanir þótt það sé líka hægt að sleppa einhverju af þessu um tíma ef okkur finnst það verða okkur til góðs.
|
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
14.02.2010 |
| 17 ára með bílpróf |
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir:
Yfirskrift messunnar er að nú fáum við bílpróf og við skrifuðum það í Fréttabréfið. Og svo spurðum við: Hvert keyrum við og hvaða orku keyrum við á og hvaða reglur mæta okkur í umferðinni? Það er við hæfi að koma með afmælisgjafir. Þær eru komnar og Ásdís vinkona okkar er búin að leggja þær fram á kirkjugólfið. Þær eru eins og lækur sem liðast um fullur af gjöfum. Eplum og appelsínum og appelsíni og malti. |
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
17.01.2010 |
| Ég vel mín áhrif - í kirkju Óháða safnaðarins |
Margrét Ívarsdóttir kennari:
„Guð hjálpar þér að umgangast fólk -og sem oftast verulega glaðlega“ Matt. 5.16. Já, ekki veitir af að fá hjálp Guðs til að umgangast fólk -alla vega sumt .Yfirskriftin hér er: ég vel mín áhrif. Vel ég ekki bara alveg þau áhrif sem ég hef á umhverfið mitt, eða er það misskilningur? En ég vel alla vega hvað hefur áhrif á mig. Í umhverfinu eru nánast óteljandi áreiti: hávaði, tímapressa, skyldur, alls kyns áhrifavaldar, t.d. auglýsingar, gylliboð og ekki síst þjóðfélagsmálin. Hvernig á að sortera og passa upp á að ekki flæði út úr kerinu manns? |
 |
| Nánar » |
|
|
 |